Esjusótt

Ég er veikur.  Ég er heltekinn af Esjusótt.  Fjórum sinnum hefur mig slegið niður með sóttinni og engin lækning er í sjónmáli.  Ég hef myndað einkennin í gríð og erg - alveg sjúkt.  Móðir mín hefur áhyggjur af öryggi mínu og hún Soffía mín hefur lýst yfir því að ég sé "ekki eðlilegur" eftir að hafa séð hve mikið ég mynda sjúkdómsvaldinn. 

Í dag var einstakt veður og sérlega tært loftið.  Skýin voru há og lág.  Þau tóku þátt í litrófinu og afkvæmi þeirra snjórinn, freðinn á fjallstoppnum endurvarpaði enn öðrum bylgjulengdum. 

Af Þverfellshorni 11-03-08

Mun ég ná mér? Wink


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristjana Bjarnadóttir

Þetta er fíkn, ef maður hefur náð að halda sér frá þessu smátíma en fellur, vill maður bara aftur, aftur og meria. Þetta er hins vegar holl fíkn og engin ástæða til að berjast gegn henni . Ekki reyna að ná þér.

Kristjana Bjarnadóttir, 11.3.2008 kl. 23:59

2 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Þetta er góð sótt! Vonandi að engin lækning finnist. Gott ef ætti ekki mætti dreifa sótt þessari sem víðast. Passa bara að klæða sig vel.

Halldór Egill Guðnason, 12.3.2008 kl. 09:18

3 Smámynd: Svanur Sigurbjörnsson

Já þetta er fín sótt.  He he já eins gott að berjast ekki gegn henni eða reyna að læknast.  Varðandi Esjuna þá þarf að bæta við möl í göngustíg í efri hluta leiðarinnar því þar verður gróðurþekjan bara að eðju sem enginn vill stíga í og þá stækkar eðjusvæðið.  Nú er spurning hver ræður yfir landinu þar sem gengið er á Esjuna.

Svanur Sigurbjörnsson, 12.3.2008 kl. 15:30

4 identicon

Úff! Kannast við þessa sótt og veit ekki um neina lausn. Sjálfur flutti ég erlendis og með árunum rann þetta af mér...

Var svo langt leiddur að á toppi minnar Esjusóttar hljóp ég upp á rétt tæpum 40mín  ...var nett sóttveikur þann daginn, um 15 árum yngri en í dag og í toppformi ...myndi deyja ef ég reyndi þannig stunt í dag, hehe!

Það er fátt betra en 'heilsusamleg' Esjusótt - má samt passa sig að rugla henni ekki við 'kikk-fíkn' sem fæst við áreynslu - ...blandaðist aðeins saman hjá mér í denn

Hollensku fjöllinn biðja að heilsa...

ingi (IP-tala skráð) 12.3.2008 kl. 20:58

5 Smámynd: Svanur Sigurbjörnsson

Það er fjári gott að ná upp á topp Esjunnar á tæpum 40 mínútum.  Ég var 1 klst að ganga upp að Steini en þá eru 170 metrar eftir upp mesta brattann.  Þú hlýtur að hafa hjólasótt í Hollandi í staðinn Ingi. 

Svanur Sigurbjörnsson, 13.3.2008 kl. 20:16

6 Smámynd: Margrét St Hafsteinsdóttir

Svanur .........ef þú heldur svona áfram þá endar það með því að þú ferð að sjá álfana og huldufólkið í Esjunni

Annars er þetta bara sniðug sótt sem þú ert með .  Ég þyrfti að fá eina slíka, er ekki mjög dugleg að klífa fjöll þar sem ég er lofthrædd en þó hefur aðeins dregið úr lofthræðslunni þar sem ég hef reynt að venja mig af henni.  

N.b. hef aldrei gengið Esjuna en hef þó komið upp á hálendið og skrölt þar um á jeppa en það finnst mér skemmtilegt að gera. Keyra í ófærð og vegleysum semsagt

Margrét St Hafsteinsdóttir, 14.3.2008 kl. 16:46

7 Smámynd: Svanur Sigurbjörnsson

He he já fullt af álfum í Esjunni Margrét, þ.e. þeir sem trúa á álfa.  :-)

Ég mæli með Esjusóttinni Margrét - verulega góð veiki.  Það er ekki hægt að vera lofthræddur á Esjunni, amk hægt að ganga upp að klettum án vandamála.  Það eru um 700 metrar held ég.

Sæll Elmar - góður - 55 mín er fínn tíma alla leið uppá topp.  Fór í 5 sinn í dag með Soffíu og við vorum 59,58 nákvæmlega upp að Steini.  GPS tækið mældi leiðina 2.8 km.  Það er ekki víst að þú náir þér Elmar þarna úti því lækningin felst í því að klífa Esjuna aftur og aftur.  Sorry, þú ert með "locked-out" variantinn og verður því í fráhvörfum þar til þú kyssir móðurjörðina á ný.

PS: Elmar, sendu mér endilega línu á svanurmd at hot.ail.com  - hef ekki lengur netfangið þitt.

Svanur Sigurbjörnsson, 17.3.2008 kl. 02:26

8 identicon

Frabaert!!! Eg vona ad thu laeknist aldrei  

Vid getum kannski tekid sossum eins og eitt Esjuskokk saman um paskana...

Kristbjörg (IP-tala skráð) 17.3.2008 kl. 23:52

9 Smámynd: Sindri Guðjónsson

Ég gekk mjög reglubundið á Esjuna rétt áður en ég varð unglingur, og á fyrstu unglingsárununm, með föður mínum. Ég man að við tókum líka þátt í Esjumaraþoni, og ég varð í öðru sæti 14 ára og yngri ef ég man rétt.

Sindri Guðjónsson, 25.3.2008 kl. 07:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband