Merkur fyrirlestur Maryam Namazie

Hér fer fyrirlestur írönsku baráttukonunnar Maryam Namazie sem hún hélt á Hallveigarstöðum í gær í boði Kvenréttindafélags Íslands.  Þetta er mín upptaka en því miður voru birtuskilyrði ekki þau bestu á tökustað.  Maryam er hingað til lands komin í boði Siðmenntar, Alþjóðamálastofnunar og Skeptikus.  Þýðing mín á grein hennar um sama efni, þ.e. blæjuna og Íslam má lesa á vef Siðmenntar.

Ég vil hvetja alla til að hlusta á þennan 22 mín fyrirlestur um efni sem margir Íslendingar hafa litla þekkingu á en er sérlega gagnlegt að fræðast um þar sem heimurinn "smækkar" með hverjum deginum sem líður.

Ég mun setja hér síðar fyrirspurnahlutann.   Sjá einnig viðtal Kastljóss við hana í gærkveldi 5. sept.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Svanur.

Ég hreifst mjög af því sem ég hlýddi á af viðtali við þessa konu í Kastljósi í kvöld.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 6.9.2007 kl. 02:21

2 Smámynd: Svanur Sigurbjörnsson

Sæl Guðrún María

Já skiljanlega.  Hún er geysilega sterkur fulltrúi mannréttinda og manngildishyggju (húmanisma).  Barátta hennar fyrir betra lífi kvenna og karla um allan heim ber vitni mikils hugrekkis og sérlega mikils siðferðisþroska og hæfni til að tjá skoðanir sínar.  Hún verður með annan fyrirlestur í dag í Odda kl 12:15.

Svanur Sigurbjörnsson, 6.9.2007 kl. 09:43

3 Smámynd: Svanur Sigurbjörnsson

Takk Skúli.

Þetta voru Siðmennt, félag siðrænna húmanista á Íslandi,

Skeptikus, félag efahyggjumanna við HÍ og

Alþjóðamálastofnun HÍ.

Þess má geta að Maryam Namazie er húmanisti og félagi í British Humanist Association.  Hún kom hér einnig til að gefa Siðmennt ráð varðandi veraldlegar athafnir, þ.e. nefningar, fermingar, giftingar og jarðarfarir.  Siðmennt mun bjóða uppá þjálfaða athafnarstjóra fyrir veraldlegar jarðarfarir í vetur.  

Svanur Sigurbjörnsson, 8.9.2007 kl. 17:11

4 Smámynd: Svanur Sigurbjörnsson

Sæll Skúli

Takk fyrir þessar ábendingar.   Mér líst mjög vel á þennan Prologue á news.faithfreedom.org síðunni.  Þar er sannleikurinn sagður um Islamska trú og kenningar Kóransins.  Mohammeð fór með hernaði og morðum til að ná völdum og áhrifum.  Svo sannarlega ekki maður friðar. 

Á islamreview er verið að bera saman Islam og kristni.  Þó að kristni a.m.k. eins og hún er víðast í Evrópu sé mun mannúðlegri en Islam, þá finnst mér kristnin sjálf gagnrýniverð og ætti að leggja hana niður rétt eins og Islam.  Biblían er full af alls kyns fordómum og misrétti auk þess sem margur siðferðisboðskapur hennar er afleitur.  Með því að leggja þessi trúarbrögð af er ekki þar með sagt að við þurfum að hætta að nota þá jákvæðu arfleifð sem þau hafa haft í för með sér.   Það er bara hins vegar þannig að gamlar og úreltar kennslubækur þurfa að víkja fyrir þeim nýrri og betri, annað er ekki bjóðandi.

Svanur Sigurbjörnsson, 9.9.2007 kl. 12:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband