Bloggfærslur mánaðarins, mars 2008
Fyrirsjáanleg viðbrögð
31.3.2008 | 03:31
Ég sá þessa stuttu mynd "Fitna" í fyrradag. Hún sýnir hvernig Íslamistar hegða sér. Þar er ekki verið að tala um hinn almenna múslima en það er vitnað í þau vers í Kóraninum þar sem hvatt er til ofbeldis og útskúfunar þeirra sem ekki eru Íslamstrúar. Svo eru sýndar klippur frá æsingarræðum Islamista þar sem hvatt er til ofbeldis.
Nú fara þeir leiðtogar sem mótmæla "Fitna" fram á ný alþjóðleg lög sem hindri ærumeiðingar í garð trúarbragða. Dæmigerð og fyrirsjáanlega viðbrögð því það er einmitt ær og kýr þessara leiðtoga að hefta mál- og tjáningarfrelsi, sérstaklega þegar kemur að trúmálum. Nú nýlega voru refsilög við guðlasti felld úr gildi í Englandi og er það mikil framför sem ætti að vera okkur Íslendingum til fyrirmyndar því enn eru í gildi fáránleg lög þessa efnis hérlendis.
Mynd hollendingsins er ekki ærumeiðandi fyrir Islam. Morðingi Theo Van Gogh er ærumeiðandi fyrir Islam. Al-Sadr er ærumeiðandi fyrir Islam. Þeir æsingarmenn haturs og óþols gagnvart öðrum en múslimum sem sýndir eru í "Fitna" eru ærumeiðandi fyrir Islam. Sérstök Íslömsk mannréttindayfirlýsing múslima, sk. Kairó-yfirlýsingin, sem tekur mið af Sharía lögum bókstafstrúarmanna, er ærumeiðandi fyrir Islam. Hryðjuverkin í New York, Madrid og London eru ærumeiðandi fyrir Islam.
Við skulum standa í báða fætur og gefa ekki þumlung eftir af góðum gildum okkar. Múslimar sem vilja lifa eftir Sharía skulu gera það í þeim löndum sem það kjósa.
Arabaleiðtogar mótmæla Fitna" | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Orð í tíma töluð - fyrir löngu síðan
21.3.2008 | 04:57
Á vef Vantúar rakst ég á eftirfarandi tilvitnun í Níels Dungal læknis sem árið 1948 gaf út bókina "Blekking og þekking". Mér finnst þessi orð hans eiga sérstaklega við í dag, ekki síður en í hans samtíma.
"Hver einasti læknir, sem hefir augun opin, gerir sér ljóst hve fyrirhafnarsamt það er að öðlast þekkingu um starfsemi mannslíkamans. Og hver einasti menntaður læknir veit, að engin framför hefir nokkurntíma orðið á því sviði nema fyrir einbeitingu á athugun, gagnrýni, vinnu og þolinmæði. En að öll afskipti trúarbragða af heilbrigðismálum, sem í gegn um aldirnar hafa verið mjög mikil, hafa, eins og allt annað sem er byggt á fáfræði og blekkingum, reynst lítilsvirði og ekki komið að gagni við lækningu á nokkrum sjúkdómi.Og þegar menn sjá í gegn um blekkingarhulu töfrakenndra helgiathafna og vita hve einskisverðar þær hafa reynst til lækninga, er þá nokkur furða þótt menn verði tortryggnir á önnur heilög sannindi", sem ekki eru skilningarvitunum aðgengileg?"
Níels Dungal, læknir
Smá djús til að sötra á yfir páskana. Eigið þá annars gleðilega! Páskaegg nr 3? eða stærra?
Heimsspeki og siðfræði | Slóð | Facebook | Athugasemdir (22)
Esjusótt
11.3.2008 | 23:46
Ég er veikur. Ég er heltekinn af Esjusótt. Fjórum sinnum hefur mig slegið niður með sóttinni og engin lækning er í sjónmáli. Ég hef myndað einkennin í gríð og erg - alveg sjúkt. Móðir mín hefur áhyggjur af öryggi mínu og hún Soffía mín hefur lýst yfir því að ég sé "ekki eðlilegur" eftir að hafa séð hve mikið ég mynda sjúkdómsvaldinn.
Í dag var einstakt veður og sérlega tært loftið. Skýin voru há og lág. Þau tóku þátt í litrófinu og afkvæmi þeirra snjórinn, freðinn á fjallstoppnum endurvarpaði enn öðrum bylgjulengdum.
Mun ég ná mér?
Umhverfi og náttúra | Breytt s.d. kl. 23:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Snjógervingar í Esjuhlíðum
6.3.2008 | 23:45
Kannski er það bara þjóðarrembingur í mér en hvergi hef ég fundið ferskara loft en á Íslandi, sem gjarnan leikur um á mildum vetrardegi eins og 3. mars s.l. þegar ég gekk mér til ánægju á Esjuna. Það er einhver sérstök fersk blanda í loftinu, e.t.v. örlítið sölt, sem hressir mann verulega og nærir hugann. Þau 14 önnur lönd sem ég hef heimsótt um ævina hafa ekki gefið mér þessa tilfinningu.
Myndin hér að neðan er frá Esjugöngunni en þennan mánudag hafði aðeins einn maður farið á toppinn á undan mér ef marka má ný spor í snjónum. Hins vegar voru einkennileg merki gamalla spora, nokkurs konar snjógervingar þeirra þar sem laus snjór í kringum þau hafði fokið burt.
Umhverfi og náttúra | Breytt s.d. kl. 23:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)