Hugsun út úr flækju fornalda

Það þarf jafnan sjálfstæða og þó nokkra hugsun til að kasta af sér hindurvitnum fornalda sem lúra enn á meðal okkar.  Myndbandið hér að neðan sýnir frá nokkrum slíkum sem jafnframt eru frægt fólk fyrir ýmis afrek sín.  Sum andlitin komu þægilega á óvart.  :-)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

nokkuð góðir!

Ég fékk einmitt um daginn komment við færslu hjá mér um pínu svipað efni.

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 20.2.2009 kl. 09:01

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Gaman að þessu.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 20.2.2009 kl. 10:47

3 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Það má bæta lengi við þennan lista af góðu fólki eins og Aldous Huxley, Rthur C. Clarke, Bertrand Russel, Voltaire, Frank Zappa, Nietzsche, Georg Bernard Shaw, Kurt Vonnegurt, Napoleon, Van Gogh, Freud og svo mætti lengi telja. Þetta eru yfirlýstir Atheistar en svo má nefna ansi marga, sem létu lítið uppi um annað en þeir tilheyrðu ekki trúarbrögðum og gagnrýndu kirkju og dogma. Þar á meðal eru flestir helstu landsfeður Ameríkana og einhverjir forsetar.  Þá er ég að tala´um fólk á kaliberi við Darwin, sem töldu eitthvað óskilgreinanlegt alheimsafl vera til en foröttuðu trúarsetningar og kirkjur og sýndu sig aldrei í tengslum við þá hræsni.

Meira að segja má segja að Jóhannes Páll fyrsti (hinn myrti) hafi nánast verið Atheisti því hann hafnaði algerlega gamla testamenntinu og taldi Móses og mósebækur mesta viðbjóð sögunnar. Merkilegur kall og lifði eðlilega ekki nema 33 daga.

Jón Steinar Ragnarsson, 20.2.2009 kl. 10:53

4 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Sen páfi altso..:-)

Jón Steinar Ragnarsson, 20.2.2009 kl. 10:54

5 identicon

Fíflið hugsar í hjarta sínu, allt sem ég skil ekki er gert af gudda... og ég fæ einbýlishús í himnaríki og verð ekki pyntaður að eilífu ef ég trúi þessu

DoctorE (IP-tala skráð) 20.2.2009 kl. 11:21

6 identicon

P.S... sorry fyrir að segja "fífl"... en biblían segir mig og alla sem trúa henni ekki vera fifl

DoctorE (IP-tala skráð) 20.2.2009 kl. 11:34

7 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Svo má ekki gleyma Charlie Chaplin...Húmor hefur aldrei verið hin sterka hlið trúaðra, enda nánast allir grínistar í Amerísku sjónvarpi yfirlýstir Atheistar.

Jón Steinar Ragnarsson, 21.2.2009 kl. 02:06

8 Smámynd: Svanur Sigurbjörnsson

Kíkti á þetta hjá þér Hildigunnur.  Gaman af þessu með tónlistina. 

Bestu kveðjur Ásthildur Cecil. 

Jón Steinar, góð viðbót þarna, en landsfeður USA voru ekki trúleysingjar, heldur deistar, sem jú miðað við tímana þá kemst næst því að vera trúleysingi.  Deistar voru ekki kristnir heldur trúðu því að guðleg vera hefði komið heiminum af stað en síðan látið náttúruna um afganginn.  Í sjálfstæðisyfirlýsingu USA skrifaði Jefferson um Guð náttúrunnar.  Það er ekki ólíklegt að þessir menn hefðu verið guðlausir hefðu þeir verið uppi 60 árum síðar, þegar Darwin kemur með þróunarkenninguna. 

Svanur Sigurbjörnsson, 22.2.2009 kl. 22:10

9 Smámynd: Svanur Sigurbjörnsson

Já, akkúrat DoktorE.  Samkvæmt biblíunni eru trúlausir "kjánar".  Allir þessir snillingar voru sem sagt kjánar.

Svanur Sigurbjörnsson, 22.2.2009 kl. 22:12

10 Smámynd: Margrét St Hafsteinsdóttir

Sæll Svanur.

Það þyrfti að sýna öllum trúuðum þetta myndbrot.  Ég hef alltaf haldið því fram að trú og þá sérstaklega öfgatrú væri vitsmunalega hamlandi, þar sem hún setur huga fólks í fjötra.

Bestu kveðjur

Margrét St Hafsteinsdóttir, 25.2.2009 kl. 21:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband